Kare Hug Tiger Dark barstóll m/tígrisdýramynstur

Glæsilegur barstóll með tígrisdýramynstruðu sæti og baki ásamt grönnum svörtum málmfótum. Skemmtileg hönnun sem setur flottan svip á rýmið.

Vörunúmer 71771 Flokkur:
Lýsing

Stílhreinn og fallegur barstóll sem vekur athygli með flottu tígrisdýramynstri í brúnum og svörtum tónum. Stóllinn er með bólstruðu sæti og ávölu baki sem gefur honum mjúkt og notalegt yfirbragð. Grannir svartir málmfætur skapa fallega andstæðu við mynstrað áklæðið og gefa stólnum léttan svip. Stóllinn hentar vel við barborð eða eldhúseyju og er skemmtileg viðbót við heimilið.

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 51cm x B: 53cm x H: 107cm
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum. Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn. Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.