Kare Mika púði 40x40cm toffee

Mjúkur og hlýlegur púði í karamellubrúnum lit sem færir sófanum eða rúminu notalega áferð á augabragði.

Vörunúmer 58663 Flokkur:
Lýsing

Loðin áferðin gefur púðanum ríkulegt og hlýtt yfirbragð og djúpur brúnn tónninn passar sérstaklega vel með beige, kremuðum litum, viði og öðrum náttúrulegum tónum. Fallegur einn og sér en enn betri í bland við púða úr hör, ull eða grófari vefnaði.

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 10cm x B: 40cm x H: 40cm
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum. Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn. Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.