Kare Mika púði 60x60cm toffee

Stór og einstaklega mjúkur púði í hlýjum karamellubrúnum lit sem færir rýminu bæði mýkt og notalega áferð.

Vörunúmer 58664 Flokkur:
Lýsing

Loðið yfirborðið gefur púðanum ríkulegt yfirbragð og hlýr brúnn liturinn fellur fallega að viði, beige, kremuðum tónum og öðrum náttúrulegum litum. Stærðin gerir púðann sérstaklega flottan sem bakpúða í sófa eða rúmi. Paraðu hann við minni Mika púðann til að skapa fallega lagskiptingu.

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 42cm x B: 60cm x H: 60cm
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum. Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn. Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.