Kare Ruben borðstofuborð 100x200cm
Skráðu þig inn til að sjá verð
Ruben borðið er einstakt borðstofuborð sem sameinar náttúrulega hlýju og fágaða nútímahönnun.
Vörunúmer
71311
Flokkur: Borð
Lýsing
Sporöskjulaga borðplatan með ljósri steináferð skapar mjúkt og fágað yfirbragð á meðan dökkur fóturinn gefur borðinu hlýju og sterkan karakter. Samspil ljósra og dökkra tóna skapar hlýlegt jafnvægi sem passar fullkomlega inn í nútímaleg, skandinavísk heimili. Ruben er hannað fyrir samveru og notaleg augnablik, hvort sem það er í daglegu lífi eða við falleg matarboð.
Frekari upplýsingar
| Stærð vöru | L: 100cm x B: 200cm x H: 75cm |
|---|
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum.
Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn.
Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.
