Kare Visione Obliquo mynd í ramma

Veggmyndin Visione Oblique er einstakt listaverk sem lyftir hvaða vegg sem er upp á nýtt stig. Hver mynd er handmáluð á bómullarstriga, sem gerir hvert eintak að sérstöku og persónulegu verki.

Vörunúmer 55431 Flokkur:
Lýsing

Abstrakt hönnun í skærum litum skapar lifandi og áberandi heild sem fangar athygli og bætir rýminu karakter. Samspil hvíts, svarts, blás, rauðs og appelsínuguls gefur myndinni orku og nútímalegt yfirbragð sem passar vel inn í stílhrein heimili.

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 0cm x B: 100cm x H: 100cm
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum. Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn. Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.