Kosy bambus rúmföt 140×200 Mud
Skráðu þig inn til að sjá verð
Upplifðu einstaka mýkt og
þægindi með bambusrúmfötum úr silkimjúku Bamboo Lyocell-efni með 400 þráða
þéttleika. Fínofinn vefnaðurinn gefur rúmfötunum einstaklega slétta, mjúka og
svala viðkomu sem skapar notalega lúxustilfinningu, nótt eftir nótt.
Bamboo Lyocell er þekkt fyrir góða öndun, rakastjórnun og
svalandi eiginleika. Efnið er silkimjúkt, slétt og notalega svalt viðkomu. Það
hjálpar til við að flytja raka frá líkamanum og stuðlar þannig að þægilegu
svefnumhverfi og ferskri tilfinningu alla nóttina. Rúmfötin henta því
sérstaklega vel þeim sem eiga það til að hitna eða svitna á nóttunni.
Silkimjúk áferðin er jafnframt mild við húð og hár. Slétt
yfirborðið dregur úr núningi og getur hjálpað til við að minnka hárflækjur og
ertingu í húð. Efnið er því notalegur valkostur fyrir þá sem eru með viðkvæma
húð og vilja leggja áherslu á mýkt og þægindi.
Vandaður 400TC vefnaður sameinar einstaka mýkt, glæsilega
áferð og lúxustilfinningu sem gerir hverja nótt að notalegri svefnupplifun.
OEKO-TEX® vottun sem staðfestir að þær hafi verið prófaðar með tilliti til skaðlegra efna og uppfylli strangar kröfur um öryggi textílvara.
Settið inniheldur:
-
1 × sængurver (140 × 200 cm)
-
1 × koddaver (50 × 70 cm)
Þvottaleiðbeiningar
Til að varðveita mýkt, gæði og náttúrulegan glans bambusefnisins er mikilvægt að þvo það af varúð.
-
Þvottur: Þvoið við 30-40°C á þvottakerfi fyrir viðkvæman þvott, bambus, ull eða silki.
-
Þvottaefni: Notið milt, fljótandi þvottaefni sem hentar viðkvæmum efnum, svo sem ull, silki eða bambus.
-
Forðist: Mýkingarerfni, þvottakodda, ilmperlur og sterk bleikiefni.
-
Þurrkun: Mælt er með loftþurrkun, en einnig má þurrka við mjög lágan hita.
-
Straujun: Ef þörf þykir þá er oft nóg að úða örlitlu vatni yfir bambusefnið og leyfa því að sléttast á náttúrlegan hátt, án þess að nota straujárn
Athugið: Bambusefni getur minnkað lítillega við þvott. Sterk þvottaefni og ilmefni geta einnig haft áhrif á náttúrulegan glans efnisins. Með réttri umhirðu helst efnið mjúkt og fallegt lengur.
| Stærð vöru | L: 200cm x B: 140cm x H: 0cm |
|---|---|
| Litur | Brúnn, Mud |
