Thumbnail

Broste Copenhagen var stofnað árið 1955 í Kaupmannahöfn. Broste er meira en hönnunarfyritæki, það er lífstíll.

Broste sækir innblástur í hönnun sína um allan heim. Mottóið þeirra er að vera partur af lífinu, að skapa lífstíl í kringum okkur. Þar af leiðandi hanna þeir vörur í sérlega miklu úrvali fyrir viðskiptavini sína. Broste Copenhagen er eitt af vinsælustu húsbúnaðarfyrirtækjum í Skandinavíu, fyrirtækið er staðsett í Kaupmannahöfn.

Broste ferðast um allan heim til þess að fá innblástur og að finna réttu efnin í vörurnar en danir eru sérstaklega þekktir fyrir að vera frumkvöðlar á sviði hönnunar. Teymið á bakvið þessa skapandi hönnun er stanslaust að finna meðalveginn í því útliti sem Broste sækist eftir, að halda í skandinavíska stílinn ásamt því að fylgja tískustraumunum.

Broste hannar og framleiðir tvær línur á hverju ári ásamt því að vera með fasta hönnunarlínu í kertum og borðbúnaði sem alltaf er hægt að ganga að.

Sýni 397–408 af 594 niðurstöðumRaðað eftir vinsældum

Broste Nordic Coal teskeið

Ekki til á lager

Teskeið í Nordic Coal línunni frá Broste Copenhagen. Í þessari línu fást ýmsar aðrar stærðir og útfærslur af bollum og krúsum í stíl við skeiðina. Skeiðin er 16 cm að lengd, 2,7cm að breidd.

Nordic matarstellin er ein vinsælasta vara Broste Copenhagen. Útlit Coal er hannað undir áhrifum frá öflum náttúrunnar og hráum grunnefnum jarðar. Stellið er handgert og því hver hlutur sérstakur. Leirinn er „lifandi“ steinleir sem tekur á sig blæbrigði árstímans þar sem ýmislegt getur haft áhrif á umhverfið; svo sem hitastig, loft og vatn (þótt uppskriftin sé alltaf sú sama). Coal stellið blandast sérlega vel með öðrum Broste stellum (t.d. Sand eða Esrum) en er einnig mjög fallegt eitt og sér.

Broste Nordic Vanilla skál Ø9xH3,5cm

Ekki til á lager

Nordic Vanilla skálin er falleg og tímalaus viðbót við hvaða borðhald sem er, þar sem einföld hönnun mætir hlýju og náttúrulegu yfirbragði. 

Broste Nordic Vanilla hitaplatti 2stk

Ekki til á lager

Þessir fallegu hitaplattar sameina hagnýta notkun og stílhreina hönnun á einstaklega fallegan hátt. Lífræn og mjúk lögun þeirra gefur náttúrulegt yfirbragð sem minnir á form úr náttúrunni og skapar hlýlegt og lifandi útlit á borðinu. 

Broste Nordic Sea skál m/loki Ø8cm

Ekki til á lager

Nordic matarstellin er ein vinsælasta vara Broste Copenhagen. Útlit Nordic sea er hannað undir áhrifum frá norrænum strandlengjum þaðan sem gráblái liturinn kemur. Stellið er handgert og því hver hlutur sérstakur. Rákirnar eru allar handmálaðar og leirinn er „lifandi“ steinleir sem tekur á sig blæbrigði árstímans þar sem ýmislegt getur haft áhrif á umhverfið; svo sem hitastig, loft og vatn (þótt uppskriftin sé alltaf sú sama).