Moomin
Hinar sívinsælu Múmín vörur eru framleiddar af Arabia, dótturfyrirtæki Iittala.
Heimur Múmínálfanna var búinn til af Tove Jansson á árunum 1945 til 1970, en hún sótti innblástur í eigið líf, fjölskyldu og vini. Einhverjir í kringum hana voru fullir af ást og gleði á meðan aðrir voru örlítið fúlir og elskuðu einveru. Allir þó frábærir á sinn hátt!
Árlega koma nýjar vörur í takmörkuðu magni sem enginn Múmínaðdáandi má láta framhjá sér fara.
Moomin diskur 19cm Adventure move
Á lager
Skráðu þig inn til að sjá verðAdventure Move bollinn er innblásinn af sögunni Halastjarnan kemur eftir Tove Jansson, þar sem Múmínálfurinn og Snorkstelpan leggja af stað til að komast að því hvers vegna íbúar Múmíndals eru skyndilega að yfirgefa heimili sín.
Moomin krús Adventure move
Á lager
Skráðu þig inn til að sjá verðAdventure Move bollinn er innblásinn af sögunni Halastjarnan kemur eftir Tove Jansson, þar sem Múmínálfurinn og Snorkstelpan leggja af stað til að komast að því hvers vegna íbúar Múmíndals eru skyndilega að yfirgefa heimili sín.
Moomin krús Moominpappa grey
Á lager
Skráðu þig inn til að sjá verðÁ heillandi gráu matarsettinu má sjá Múmínpabba við vetrarundirbúning á Múmínhúsinu til þess að tryggja að fjölskyldunni verði hlýtt á meðan þau liggja í vetrardvala.
Kuldinn helst úti og hitinn inni meðan til er nægur eldiviður og gluggarnir eru vel einangraðir með plötum. Í ár hefur Múmínmamma ákveðið að fjölskyldan muni sofa í eigin rúmum en ekki í heyinu eins og hefðin er.
Moomin skál 15cm Love
Á lager
Skráðu þig inn til að sjá verðLove skálin sýnir hlýlega og rómantíska stund þar sem Snorkstelpan og Múmínálfurinn mála blóm saman á vegg. Myndskreytingin byggir á myndasögunni Múmín byggir hús (Moomin Builds a House), þar sem Múmínálfurinn ákveður að byggja sér eigið hús.
Moomin krús Snufkin Green
Ekki til á lager
Skráðu þig inn til að sjá verðSnúður er auðþekkjanlegur á græna hattinum sínum með breiðu barði, pípuna og þeim heimspekilegu vangaveltum sem hann deilir gjarnan með vinum sínum.
Moomin krús True to its origins
Ekki til á lager
Skráðu þig inn til að sjá verðListakonan Tove Slotte hefur hér endurgert upphaflegu Moomin teikningarnar frá Tove Jansson af mikilli snilld. Bollarnir þola uppvottavél, eru úr postulíni og taka 30 cl. Hæð bollans er 8,1 cm og þvermál hans er 8,3 cm en við haldið er það 11,6 cm.
Moomin krús Mymble
Ekki til á lager
Skráðu þig inn til að sjá verðMymbla, stóra systir Míu litlu er algjör rómantíker sem verður auðveldlega hrifin af sterkum og hetjulegum persónum. Þegar hún var ung bar hún oft ábyrgð á fjölmörgum yngri systkinum sínum, en nú kýs hún frekar að njóta líðandi stundar og ævintýranna sem lífið í Múmíndal hefur upp á að bjóða.
Moomin krús The groke
Ekki til á lager
Skráðu þig inn til að sjá verðGrokkan er ein dularfyllsta og misskilnasta persónan í Múmínheiminum. Á þessum bláa Grokkan bolla sést hún stara á olíulampa í leit að birtu og hlýju. Eldurinn logar þó ekki lengi, því ísköld nærvera hennar slekkur á hverjum loga sem hún nálgast og jafnvel jörðin frýs undir fótum hennar.



