Kosy bambus koddaver 2 stk 50×70 cm Mocca

Upplifðu einstaka mýkt og þægindi með koddaverum úr silkimjúku Bamboo Lyocell-efni með 400 þráða þéttleika. Fínofinn vefnaðurinn gefur koddaverunum einstaklega slétta, mjúka og svala viðkomu sem skapar notalega lúxustilfinningu, nótt eftir nótt.

Vörunúmer 25065070 Flokkur:
Lýsing

Bamboo Lyocell er þekkt fyrir góða öndun, rakastjórnun og svalandi eiginleika. Efnið er silkimjúkt, slétt og notalega svalt viðkomu. Það hjálpar til við að flytja raka frá húðinni og stuðlar þannig að þægilegu svefnumhverfi og ferskri tilfinningu alla nóttina.

Silkimjúk áferð koddaveranna er jafnframt mild við húð og hár. Slétt yfirborðið dregur úr núningi og getur hjálpað til við að minnka hárflækjur og ertingu í húð. Koddaverin eru því notalegur valkostur fyrir þá sem eru með viðkvæma húð og vilja leggja áherslu á mýkt og þægindi.

Vandaður 400TC vefnaður sameinar einstaka mýkt, glæsilega áferð og lúxustilfinningu sem gerir hverja nótt að notalegri svefnupplifun.

OEKO-TEX® vottun sem staðfestir að þær hafi verið prófaðar með tilliti til skaðlegra efna og uppfylli strangar kröfur um öryggi textílvara.

Þvottaleiðbeiningar

Til að varðveita mýkt, gæði og náttúrulegan glans bambusefnisins er mikilvægt að þvo það af varúð.

  • Þvottur: Þvoið við 30-40°C á þvottakerfi fyrir viðkvæman þvott, bambus, ull eða silki.

  • Þvottaefni: Notið milt, fljótandi þvottaefni sem hentar viðkvæmum efnum, svo sem ull, silki eða bambus.

  • Forðist: Mýkingarerfni, þvottakodda, ilmperlur og sterk bleikiefni.

  • Þurrkun: Mælt er með loftþurrkun, en einnig má þurrka við mjög lágan hita.

  • Straujun: Ef þörf þykir þá er oft nóg að úða örlitlu vatni yfir bambusefnið og leyfa því að sléttast á náttúrlegan hátt, án þess að nota straujárn

Athugið: Bambusefni getur minnkað lítillega við þvott. Sterk þvottaefni og ilmefni geta einnig haft áhrif á náttúrulegan glans efnisins. Með réttri umhirðu helst efnið mjúkt og fallegt lengur.

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 0cm x B: 70cm x H: 50cm