Kare Design
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum.
Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn.
Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.
Kare Mad dog sparibaukur gylltur/blár 26cm
Á lager
Skráðu þig inn til að sjá verðLitríkur, skemmtilegur og fullur af karakter – þessi sparibaukur í formi hunds er sannkallaður athyglisgripur.
Kare Pig Party stytta gyllt 20cm
Á lager
Skráðu þig inn til að sjá verðHandmálað polyresin skraut unnið að hluta til í handavinnu. Vandað og listrænt útlit sem gerir hvert stykki einstakt og bætir sérstöðu í rýmið.




