Thumbnail

Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum.

Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn.

Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.

Sýni 181–192 af 210 niðurstöðumRaðað eftir vinsældum

Kare Flower Bloom skrautskál cream/gyllt

Ekki til á lager

Falleg skrautskál í mjúkum off-white lit með gylltum áherslum dregur augað að sér með blómaformi sínu. Fáguð hönnun og vönduð útfærsla gera skálina bæði skrautlega og hagnýta.

Kare Fox Terrier sparibaukur

Ekki til á lager

Einstaklega sætur sparibaukur úr dolómiti, handgerður.

Kare King dog sparibaukur

Ekki til á lager

Einstaklega skemmtilegur baukur úr pólýresíni, málað og handmálað, að hluta til handunnið.

Kare Graffiti flying pig stytta 16cm

Ekki til á lager

Skrautleg stytta úr pólýresín, handmáluð og hvert stykki einstakt.

Kare Shiny puppies sparibaukur 12cm

Ekki til á lager

Skemmtilegir og litríkir baukar. Úr dolómíti, handmálaðir.